Allar almennar bílaviðgerðir
Hjá Höldi er boðið upp á viðgerðir fyrir allar gerðir ökutækja. Hvort sem um er að ræða minniháttar lagfæringar eða stærri verkefni, eins og viðgerðir á hemlum, fjöðrun eða vélbúnaði, tryggja fagmenntaðir bifvélavirkjar að verkið sé unnið af fyllstu nákvæmni.
Verkstæðið er búið nútímalegum tækjabúnaði til að greina bilanir fljótt og örugglega. Með því að nota hágæða varahluti og fagleg vinnubrögð lengir þú líftíma bílsins og tryggir öryggi þitt og annarra í umferðinni.
Verkstæðið er viðurkenndur viðgerða- og þjónustuaðili fyrir bílaumboðin Heklu, Öskju, Suzuki og Vatt.
Þú færð trausta þjónustu á sanngjörnu verði hjá Höldi.
Þjónustuskoðanir
Á meðan bílar eru í ábyrgð frá framleiðanda er nauðsynlegt að koma með þá í þjónustuskoðun. Það er misjafnt eftir tegundum hversu oft bílar þurfa að koma. Upplýsingar um það er að finna í ábyrgðarbók bílsins auk þess sem ráðgjafar okkar geta veitt upplýsingar. Ef bílar koma ekki í þjónustuskoðun samkvæmt kröfum framleiðanda getur það haft áhrif á ábyrgðina ef eitthvað bilar eða reynist gallað í bílnum. Það er því afar mikilvægt að fylgjast vel með hvenær bíllinn á að koma í skoðun.
Í þjónustuskoðunum er unnið samkvæmt þjónustulistum framleiðanda. Í þeim er skipt um olíu á þeim bílum þar sem það á við, skipt um síur og athugað með kælivökva, bremsuvökva og undirvagn og bremsur yfirfarið, ásamt fleiru. Í stærri skoðunum er einnig skipt um bremsuvökva, olíu á drifum, skipt um kerti og fleira, allt eftir kröfum framleiðanda. Eigandi bílsins greiðir fyrir þjónustuskoðanir.
Smurþjónusta
Fyrsta flokks smurþjónusta tryggir að bíllinn þinn er alltaf í toppstandi. Við notum aðeins viðurkenndar síur og olíur úr efstu hillum framleiðanda. Reyndir bifvélavirkjar sjá um olíuskiptin og yfirferð á bílnum af fyllstu nákvæmni.
Góð og regluleg smurþjónusta er lykillinn að endingu vélarinnar og getur sparað dýrar viðgerðir þegar fram líða stundir.
Panta tíma í smurþjónustu .
Hjólastilling
Nákvæm hjólastilling bætir aksturseiginleika og eykur öryggi þitt á veginum. Ef bíllinn leitar til hliðar eða stýrið er skakkt, getur það verið merki um að stillingu sé áfátt.
Rétt hjólastilling lágmarkar dekkjaslit og minnkar eldsneytiseyðslu, sem sparar fjármuni til lengri tíma. Með nýjustu tækni og vandvirkni tryggja fagmenn Hölds að bíllinn þinn keyri beint og örugglega.
Panta tíma í hjólastillingu .
Hraðþjónusta
Við leggjum ríka áherslu á vandaða og skilvirka hraðþjónustu sem hentar fullkomlega fyrir fólk á ferðinni. Hraðþjónustan sinnir smærri verkum svo sem bilanagreiningu, smurþjónustu, rúðuþurrku- og peruskiptum ásamt smærri tilfallandi viðgerðum. Staðsetningin er miðsvæðis og aðstaðan til fyrirmyndar, sem gerir heimsóknina bæði þægilega og fljótlega.
Bilanagreining
Hjá Höldi er bilanagreining framkvæmd með nýjustu tölvutækni sem finnur villur í tölvukerfum og vélbúnaði bílsins. Hvort sem vélarljósið logar eða óútskýranleg hljóð heyrast, greina sérfræðingar okkar vandann fljótt og örugglega. Með réttri greiningu sparar þú tíma og tryggir
að viðgerðin beinist strax að réttum stað.
Rafbílar
Við sérhæfum okkur í þjónustu við rafbíla. Tækniþróun í bílum er hröð og búnaður þeirra verður sífellt fullkomnari, en jafnframt flóknari. Verkstæðið er vel búið tækjum og starfsmenn okkar hljóta símenntun hjá framleiðendum til að standast kröfur um þekkingu og tækni. Þeir eru því tilbúnir að fást við margskonar áskoranir þegar kemur að viðhaldi og viðgerðum á nýjustu rafbílum.