Bílaréttingar


Tjónaverkstæði Hölds er án efa eitt það fullkomnasta á landinu. Þar má meðal annars finna réttingarbekkir frá Car-O-Liner með tölvustýrðum mælibúnaði.

Mikil þekking og reynsla starfsmanna spannar öll svið tjónaviðgerða. Við bjóðum að sjálfsögðu upp á Cabas tjónaskoðun, framrúðuskipti og framrúðuviðgerðir.

Verkstæðið er með BGS vottun ásamt fimm stjörnu vottun frá Sjóvá og annast viðgerðir á öllum tegundum fólksbíla og jeppa.


Bílaréttingar

Bílamálun


Sprautuverkstæðið er búið tveimur Garmat sprautuklefum af fullkomnustu gerð. Þar eru einnig tveir undirbúningsklefar (e.Prep-Stations) frá Garmat, báðir búnir útsogi og infrarauðum hitalömpum.

Bílamálarar með áratuga reynslu skila góðu verki. Það tryggir bæði gæði og endingu.


Bílamálun

Tjónaskoðun


Tjónamat tekur að jafnaði um 10 mínútur en getur tekið lengri tíma sé um umfangsmikið tjón að ræða. Matið sendum við tryggingafélaginu ásamt myndum. Tryggingafélagið tekur sér að jafnaði einn til tvo daga í að vinna úr matinu áður en niðurstaða liggur fyrir.

Lesa meira.



Tjónaskoðun á Akureyri

Framrúðuskipti og framrúðuviðgerðir


Hér getur þú pantað tíma í framrúðuskipti eða framrúðuviðgerð. Oft er hægt að gera við stjörnur í framrúðum sem eru minni en 2 cm í þvermál. Framrúðuviðgerðir eru að fullu greiddar af tryggingafélagi og því viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Við framrúðuskipti greiðir viðskiptavinur hins vegar sjálfsábyrgð sem er mismikil eftir tryggingafélögum. VÍS og Sjóvá innheimta sjálfsábyrgðina við uppgjör tjónsins en hjá öðrum tryggingafélögum er sjálfsábyrgðin greidd hjá okkur.

Panta tíma .

Framrúðuviðgerð